miðvikudagur, apríl 19, 2006

Upp komst um strákinn Tuma

Ég hef sagt það áður. Það er með ólíkindum hvað persónleikapróf á Netinu hitta oft naglann á höfuðið.


Your Monster Profile

Twisted Murderer

You Feast On: Fingernails

You Lurk Around In: The Empire State Building

You Especially Like to Torment: British People

Ýmsir aðrir en rollur farnir að segja me

Svava systir tók sig til og memeaði mig en í því felst að ég verð að gefa ýmsar persónulegar upplýsingar um mig. Mér skilst að í svona tilfellum verði maður að vera sannsögull og ekki ljúga neinu svo auðvitað geri ég það.

First town I ever lived in: Ég fæddist í Kalkútta en ólst upp í Kúala Lúmpur þar sem pabbi átti og rak vinsælan pylsubar.

First album owned: Hindira Ramahanaha and his sitar music.

First gig seen: Alahambra Iran on stage in Ur.

First Celebrity Crush: Hari Krishna

First Film you remember seeing: Blámenn og villidýr í Afríku. Heimildakvikmynd eftir David Livingstone.

First time you drank alcohol: Aldrei nokkurn tíma smakkað slíkt ógeð. Ég er tabúisti og það er algjörlega andstætt okkar trúarbrögðum að drekka, reykja, stunda kynlíf og ljúga.

First paying job: Var einkaritari Imeldu Marcos frá 1974 til 1976. Hætti vegna skóleysis.

First Kiss: Var kysst af hinum ómótstæðilega Kubla Khan árið 1964. Reyndar var hann orðin frekar ógeðslegur þá, enda fæddur einhvern tíma snemma á fimmtándu öld.