föstudagur, október 28, 2005

Verið varkár hætturnar leynast víða

Gurrí mín var að senda mér þennan tölvupóst. „Ég hef verið að heyra af óprúttnum Töntrurum sem tantrast upp á fólk án samþykkis ... þetta er kallað Rape-yoga.“ Þetta komment tók hún af bloggi frænda síns: www.bitringur.blogspot.com. Ég taldi ástæðu til þess að koma þessari viðvörun á framfæri svo þið gætuð haft augun hjá ykkur kæru vinir. Hætturnar leynast sem sé víða og sakleysislegur jógi með lappirnar bak við haus og hendurnar kræktar undir rass getur verið stórhættulegur rape-yoga tantrari. Í stað þess að bíða og sjá til sparkið þá í helvítið og hann mun rúlla ansi langt áður en honum tekst að losa sig í sundur.

Nú er frost á Fróni

Týra litla vakti mig í morgun með væli og mjálmi. Hún vildi komast út en var fljót að skreiðast inn aftur með snjóklepra í feldinum. Hún rann til og frá á þakinu og ætlaði aldrei að komast upp í þakgluggann. Yellow var hins vegar hin hressasta og kunni því ágætlega að það blési svolítið. Ég fór í kraftgallann en samt var mér svo kalt að ég nötraði og skalf. Þegar við komum niður að andapolli upphófst ægilegur söngur og garg í öndum og gæsum. Ég skildi alveg hvað þær voru að segja. nefnilega: „Passiði ykkur krakkar. Þarna er guli ógnvaldurinn sem alltaf er að pína okkur. Næst söfnum við liði og ráðumst á helvítið.“ Yellow kippti sér ekkert upp við þetta heldur snuðraði og tuðraði fram og aftur allt í kringum polllinn. Hún hefði alveg getað haldið áfram lengi enn þegar við komum heim en ég var búin að fá nóg.