þriðjudagur, nóvember 09, 2004

Sárt er sjónleysið

Dómur er fallinn í líkfundarmálinu. Sakborningar fengu allir þrír tveggja og hálfs árs fangelsi. Mikið hlýtur aumingja Jónasi að svíða sárt sjónleysið núna. Illt er að þurfa að gjalda fyrir athyglisbrest sinn og skort á forvitni á þennan hátt. Áttatíu kílóa lík í skottinu er nú frekar fyrirferðarmikill farangur en auðvitað þarf það ekki að vera neitt sérstaklega áberandi þegar að er gáð, ekki frekar en fíll í fínu boði.

Til fjandans er farið vort réttarfar
og því að bjarga ei þýðir par
því nú er tíðin slík
að ef menn sjá ei lík
er sjónleysið engin afsökun mar!