þriðjudagur, mars 29, 2005

Veðurfréttirnar með svefnherbergisröddu

Við Guðmundur brugðum okkur norður á Akureyri um páskana. Á leiðinni heyrðum við veðurfréttir og sá lestur var með því dásamlegasta sem ég hef lengi heyrt. Konan sem las fréttirnar las sem sé hægri, hásri röddu sem kom langt neðan úr hálsi þ.e. með ekta svefnherbergisröddu en í stað þess að segja: Já, svona ástin mín, einmitt þarna. Já, haltu áfram. Jáh, jáh, jáh. Sagði hún: Hæg norðan átt, léttskýjað og dálítil súld vestan lands. Reynið sjálf að leika þetta eftir. Ég get sagt ykkur að þetta hljómaði alveg yndislega, hjákátlega.

Skriðan sem hvarf

Já, það er ekki nema von að Svövu finnist innihaldsríkur pistillinn minn um urðina og grjótið. Reyndar var þarna að finna heillanga sögu af göngu okkar Guðmundar á Lambafell á föstudaginn langa en sennilega hefur alföður þótt svo óguðlegt að skrifa á föstudaginn langa að almættið hefur þurrkað söguna út. Ég finn hvorki tangur né tetur af skrifum þessum hér á síðunni og það eina sem eftir stendur er hin frumlega fyrirsögn. En skítt með það. Ég reyni að rifja gönguna upp síðar og endursegi kannski frásögnina, enda nú kominn rúmhelgur dagur.