miðvikudagur, febrúar 08, 2006

Misþyrmingar á börnum

Góð vinkona mín sendi mér eftirfarandi tölvupóst og meðan ég las gerði ég mér grein fyrir því á hversu margvíslegan og mismunandi hátt er hægt að misþyrma börnum.

Það er náttúrlega nauðsynlegt að færa lestrarbækurnar til nútímans svo börnin finni sig í þeim: Bekkjarafmælið

Ósk Ýr gekk rösklega með Brand Ara í afmælið til Egils Daða því hún var að verða of sein að sækja Leif Arnar og Loft Stein í leikskólann. Borgar Vörður, pabbi Egils Daða, tók á móti þeim. Þarna voru Lind Ýr, Líf Vera, Sól Hlíf og Hreinn Bolli. Erlendur Hreimur kom blaðskellandi innan úr stofunni og vinkonurnar Vísa Skuld og Dís Ester fast á hæla honum. Mýra Þoka lét lítið fyrir sér fara úti í horni. Innan úr herbergi Egils Daða bárust ógurlegir skruðningar. Línus Gauti, Barði Vagn og Mist Eik voru greinilega mætt. En hvar var Ríta Lín? Fyrir utan var Sædís Líf í rauðum fólksvagni. Hægt og sígandi nálgaðist Jökla Þoka eftir stígnum. Hún var orðin alltof sein í afmælið.

Við þessi einstöku gullkorn get ég bætt við nokkrum nöfnum sem ég veit að raunverulegar manneskjur bera, þ.e. Bjartur Dagur, Glóð Logadóttir, Guðni Stígur Heiðar, og vafalaust mætti fleira tína til.