Gullæði í Smáralind
Ég fann fyrir því í gær þegar nær dró lokum sýningarinnar Fjölskyldan og fjármálin að ég var farin að þreytast. Af einhverjum ástæðum urðu brandarar stútungskarla sem stilltu sér upp fyrir framan mig og sögðu: Þetta er ekkert ekta gullmoli. Þetta er bara spreyjað plast eða trékubbur, sífellt ófyndnari. Nokkrir fullyrtu líka að klumpurinn væri holur að innan. Heimska mannanna kemur mér stöðugt á óvart. Ef um unglingsstráka hefði verið að ræða hefði þetta verið skiljanlegt en þetta voru karlmenn á besta aldri. Allir héldu þeir því fram að ef þeir bara fengju að halda á molanum gætu þeir sagt til um nákvæma þyngd hans. Þvílíkir snillingar! Börnin voru mér einnig umtalsverð uppspretta skemmtunar en sum fundu sig knúin til að standa við borðið mitt til að leyfa mér að njóta yndislegrar kátínu sinnar. Það eina sem hélt aftur af mér var sú staðreynd að leiðinlegt hefði verið fyrir vinnuveitanda minn ef fyrirsagnir í blöðunum í dag hefðu verið: Gullæði í Smáralind: Verndari gullmolans gengur berserksgang og misþyrmir börnum og feðrum þeirra. Ég tek það fram að konurnar voru upp til hópa hógværar og notalegar.
3 Comments:
Þurftir ÞÚ að passa gullmolann? Hélt að vopnaður lögreglumaður úr víkingasveitinni hefði verið fenginn til þess!!!
Já, karlar og börn eru leiðinleg kvikindi á sýningum. Á heilsusýningunni í Egilshöll gat ég ekki prófað nuddstólana því að börn höfðu plantað sér þar og hreyfðu sig ekki þótt ég haltraði 15 sinnum fram hjá þeim! Bömmer!
Gullmola ?? Hvað gullmola ?? Af hverju er ég að missa ? Rændirðu Fort Knox á meðan ég brá mér til Ólafsfjarðar ???
Þetta ætti bara að kenna Svövu Svanborgu að flækjast ekki út á land þegar hún hefði getað grætt marga, marga peninga!
Skrifa ummæli
<< Home