föstudagur, apríl 29, 2005

Minnisverð tíðindi

Ég hef alltaf öfundað fólk sem er skarpgreint og fljótt að hugsa. Það hendir ekki oft að ég sé snögg upp á lagið og nái að svara fyrir mig í tíma þannig að þegar slíkt gerist er það þess virði að fært sé í annála. Ég var sem sé að senda viðmælendum mínum eintak af nýjustu Vikunni og gekk fram í afgreiðslu fyrirtækisins til að póststimpla umslögin. Ekki tókst betur til en svo að stimpillinn festis í efstu stöðu og vildi ekki niður. Ég vék mér að móttökustúlkunni okkar og spurði ráða. Hún leit á stimpillinn og sagði með holri, sorgþrunginni röddu: „Drapstu hann.“ Ég svaraði að bragði: „Ég get fullvissað þig um að hann átti það skilið.“

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Það er gjörsamlega óþolandi þegar manni dettur hið fullkomna svar í hug ... daginn eftir eða enn seinna. Og það er ekki hægt að gera neitt í því. En þetta svar þitt var snilld!!! Magga okkar hlýtur að hafa kunnað að meta það. Svo var þessi stimpill líka algjört fífl.
Grrrrr

10:01 e.h.  
Blogger Svava said...

Já, maður klikkar stundum á snappy comebacks. En stimpillinn had it coming alright !

2:09 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home