fimmtudagur, desember 14, 2006

Góð byrjun

Freyja hefur fengið í skóinn, eins og önnur góð börn, undanfarna daga og nú er hún farin að fatta að eitthvað stendur til á morgnana þegar ég reyni að laumast niður. Hún fylgir mér því fast eftir og sleppir ekki af mér augunum. Ég reyni að laumast í ísskápinn til að sækja nammi en hún hefur fengið lifrarpylsusneið í skóinn fram að þessu. Hún á í mesta basli við að ná sneiðinni sinni upp úr skónum og stundum horfir hún ásakandi á mig eins og hún vilji segja: „Til hvers ertu að troða þessu þarna? Getur þú ekki bara gefið mér þetta eins og eðlileg manneskja?“ Ég verð að játa að hundurinn hefur ýmislegt til síns máls.

2 Comments:

Blogger Unknown said...

Mér hefur nú ekki dottið í hug hingað til að gefa hundinum í skóinn, enda er hann svo fordekraður að ég veit ekki hvort að það er á það bætandi. ;)

Hins vegar fær hann jólagjöf...

6:33 e.h.  
Blogger Steingerdur hin storskorna said...

Þetta var reyndar ekki mín hugmynd elsku farfugl þótt ég sé þekkt fyrir að fordekra hundinn. Maðurinn minn elskulegur sendi mér þessa uppástungu utan af sjó. Hann nefnilega fordekrar ekki hundinn heldur offorsdekrar hann.

12:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home