miðvikudagur, apríl 12, 2006

Eplið og eikin

Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni segir máltækið og sonur minn sannaði rétt í þessu að hann er sonur föður síns. Aldrei hefði mér dottið í hug að senda aldraðri móður minni sem væri að fara úr landi svohljóðandi bréf:

Sæl og bless gamla hræ,

Hér er listi yfir geisladiska sem þú mátt kíkja eftir úti. Þér er hollast að kaupa sem flesta annars mun ég hringja í Tollstjóraembættið og segja að þú sért að smygla anabólískum sterum þegar þú kemur heim.

Bleble,

Andri

Þetta er augljóslega úr föðurættinni en hins vegar sendi ég honum viðeigandi svar: Nefnilega: Þegiðu djöfuls, bölvað steratröllið þitt. Kv. Mamma

3 Comments:

Blogger Svava said...

Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.

4:37 e.h.  
Blogger Svava said...

Ég er að hugsa um að hringja í bandarísk stjórnvöld og segja að systir mín sé að koma til landsins með sprengju í rassinum. Verður gaman að heyra sögur af leit bandarískra tollvarða að henni :-)

4:38 e.h.  
Blogger Svava said...

hæ hó, er búin að meme-a þig. kíktu á síðuna mína til að sjá hvað það þýðir :-)

12:57 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home