fimmtudagur, maí 12, 2005

Spamarar eru fullir innsæis

Ég mun aldrei hætta að undrast hið ótrúlega innsæi venjulegs spamara. Þessar elskur heita allt frá Orgasm B. Focker upp í Vicodin C. Morphine og þær senda mér reglulega upplýsingar um ódýrt viagra, hræbilleg róandi lyf, krassandi klámsíður og hvernig næla á sér í háskólagráðu án fyrirhafnar. Þetta lið er greinilega með mín helstu áhugmál á hreinu og veit alveg hvað það er sem ég helst þrái. Þó gekk alveg fram af mér núna þegar Mason nokkur Mercer sendir mér hjartnæmt bréf um að if my wife is in lot of pain, þá geti hann nú reddað mér verkjalyfjum fyrir slikk. Eiginkona mín er eftir því sem ég best veit ófundin enn. Ég kann samt ekki við að segja Masoni það fyrst hann er svona elskulegur að bjóða mér leið til að hressa kerlu.

1 Comments:

Blogger Svava said...

Ég elska bréfin frá nígersku svindlurunum. Þau eru alveg yndisleg. Þegar einhver s.s. forsetinn eða háttsettur embættismaður hefur látist, og skildi eftir sig miljónir sem tölvupóstritarinn vill endilega deila með þér. Þvílík heppni :-) Ég fæ btw stanslaust pósta um penis enlargement. Er kannski gott, enda með frekar lítinn penis.

1:17 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home