fimmtudagur, september 23, 2004

Sá eini rétti, þjóðsaga eða raunveruleiki

Rithöfundurinn Oscar Wilde sagði að einmanaleiki væri þráin eftir sálufélaga. Sjálfur var hann giftur konu sem hann bæði virti og elskaði en átti í erfiðu ástarævintýri við ungan aðalsmann sem sveik hann og varð þess óbeint valdandi að Oscar var dæmdur í fangelsi fyrir samkynhneigð.

Við vitum að Oscar fann sárt til einmanaleikans í fangelsinu, um það vitnar Kvæðið um fangann, en allmargir lifa ákaflega heilbrigðu og góðu lífi án þess að finna nokkru sinni sálufélaga. Þeir eru líka til sem aldrei segjast vera einmana. Skyldi það þá vera tóm vitleysa að einhvers staðar í heiminum leynist einn réttur maki handa hverjum og einum jarðarbúa?

Nýleg rannsókn, sem gerð var á vegum Journal of Personality and Social Psychology, leiddi í ljós að menn þurfa að trúa að þeir hafi fundið sinn sálufélaga eða hinn eina eða einu réttu en einstaklingarnir geta verið jafnólíkir og svart og hvítt. Í góðum ástarsamböndum virðist fólk einfaldlega gera ráð fyrir að það eigi ákaflega margt sameiginlegt en það gerir lítið til að sannreyna að svo sé.

En hvernig gerist þetta yfirleitt? Jú, strákur hittir stelpu og þau hrífast hvort af öðru. Í fyrstu nálgast þau hvort annað varlega en til að styrkja tilfinningarnar leita þau bæði eftir staðfestingu á að hann/hún sé hinn eini eða sú eina rétta og þá einhvern veginn virðast öll smáatriði staðfesta að svo sé. Hann/hún er svo líkur mér, hann fílar alveg sömu tónlistina, hún vill nákvæmlega eins pítsu og ég, við höfum ferðast til sömu landanna og okkur líkar vel við sama fólkið.

Ástin er blind

Þessi atriði verða í huga hins ástfangna stórmerkilegar tilviljanir sem staðfesta að einmitt þessi var þér og engum öðrum ætlaður. Á sama tíma kann vel að vera að í ljós hafi komið að annar aðilinn er fótboltaáhugamaður en hinn sér ekkert nema körfubolta. Það getur líka verið að annar hafi áhuga á útivist en hinn kunni best við sig innan dyra, uppi í rúmi með bók. Ástfangnir leiða slíkt hins vegar gjarnan hjá sér og velta því aldrei fyrir sér hvort það muni valda vandræðum seinna meir.

Hvers vegna elskum við einhvern? „Af því bara ég elska þig?“ sagði tveggja ára stúlka þegar mamma hennar spurði hana af hverju hún elskaði mömmu sína. Þetta er í raun mun betra svar en nokkuð það sem fullorðna fólkinu kynni að detta í hug. Staðreyndin er nefnilega sú að þú elskar ekki maka þinn af því að hann er svo góður, myndarlegur, umhyggjusamur, metnaðargjarn eða gáfaður. Það eru mun frekar allir hans kostir samanlagðir sem gera það að verkum að þú elskar hann út af lífinu og þú elskar þrátt fyrir gallana sem vissulega eru fjölmargir.

Emily Dickinson sagði: „Hjartað þráir það sem það þráir.“ Og þar sem hjartað er einfaldlega svo ólíkt huganum þarf það ekki að færa rök fyrir vilja sínum og löngunum, þær eru bara svona. Það kann vel að vera að þetta hljómi órómantískt og hálfleiðinlega. Það gerir einhvern veginn líka lítið úr ástinni að segja: „Ég tel að við séum sálufélagar af því að ég er búin að telja mér trú um það.“

En þá má ekki gleyma því að örlítil sjálfsblekking getur orðið að veruleika með tíð og tíma og þar með er parið hamingjusamt jafnvel um aldur og ævi. Það er ekki hægt að líta fram hjá því að slíkt hefur gerst og er enn að gerast. Það er einfaldlega eðli ástarinnar. Þetta ætti líka að vekja vonir margra því þú þarft ekki lengur að vera sálufélagi einhvers þú þarft einfaldlega að telja honum trú um að svo sé og það hlýtur að vera auðveldara en að finna einhvern sem fellur að skapferli þínu eins og hanski að hönd.

2 Comments:

Blogger Svava said...

What is love ? Baby don't hurt me, don't hurt me no more (spilið tónlistina með í huganum). Vandamálið við ástina, hinn eina rétta og allt það er að þó svo að þú hafir fundið þinn sálufélaga (eins og ég fann Brad Pitt), þá er ekki víst að hann sé á sama máli (Brad won't return my calls). So, love hurts, uuuuuuuu love hurts :-)

10:27 f.h.  
Blogger Svava said...

Auðvitað er hún snarvitlaus, en það hindrar hana ekki í að hafa stundum rétt fyrir sér :-)

2:55 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home