föstudagur, júní 23, 2006

Korgpokinn og hugsanavélin

Ég stóð frammi við kaffivélina í morgun og beið eftir að komast að til að fá mér kaffi. Gísli Egill ljósmyndari var á undan mér og þar sem mér blöskraði hversu lengi kaffivélin var að jafna sig eftir að hafa afgreitt hvern kaffibolla hreytti ég út úr mér: „Ef ég væri svona lengi að hugsa er ég viss um að ég væri rekin.“ „Já,“ svaraði Gísli Egill. „Annars fer þetta ábyggilega eftir því hversu oft væri skipt um korgpoka í þér eins og henni.“

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Gaman að lenda í einhverju svona, hahahahhaha, Gísli leynir greinilega á sér, virkar þetta dásamlega ljúfmenni á göngunum og svo koma svona andstyggilegar (og fyndnar) athugasemdir út úr honum.

11:28 f.h.  
Blogger Svava said...

Að mínu mati hefur alls ekki verið skipt um korgpoka nógu oft í þér..

1:13 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home