laugardagur, febrúar 04, 2006

Sögur af mér og sögur af þér

Ég fór í æfingaferð um Reykjavík í morgun á vegum skólans. Að þessu sinni talaði ég síðust af öllum. Ég varð ekki orðlaus ólíkt því sem gerðist á Reykjanesinu en fékk orð í eyra á eftir fyrir að hafa sagt sögur af afa og pabba. Mér var bent á að betra hefði verið að benda fólki á Verslunarskólann, Háskólann í Reykjavík og Borgarleikhúsið. Persónulega fannst mér sagan af afa eiga mjög vel við. Ég benti fólki á að götunar í nýrri hlutum borgarinnar væru breiðari en göturnar niðri í bæ, enda hefðu þær verið hannaðar fyrir hesta en ekki bíla. Síðan sagði ég fólki að afi hefði fram í andlátið átt hesta í bakgarðinum en hann hefði dáið 1974. Dag nokkurn hefði hann verið á ferð um miðborg Reykjavíkur ásamt félaga sínum og tvöföldu dyrnar á Hótel Borg stóðu þá opnar. Félaginn sagði við afa: Ég þori að veðja að það er hægt að ríða inn um þessar dyr þær eru svo breiðar. Ég tek því veðmáli svaraði afi um hæl og reið síðan viðstöðulaust inn um dyrnar og alla leið inn í Speglasal. Hótelstjórinn var ekki hrifinn og afi var í banni á Hótel Borg í nokkra mánuði á eftir. Sagan af pabba fjallaði um hversu lítið hann þurfti að borga fyrir fiskinn sem hann keypti fyrir mömmu sína beint af sjómönnunum niðri á höfn. Ég benti á að í dag myndi sambærilega máltíð kosta margfalt meira. Vissulega fóru Borgarleikhúsið og Kringlan í súginn meðan þessar sögur voru sagðar en mér fannst það ekki stórmál.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Mér finnst sagan af afa þínum miklu skemmtilegri en vitneskjan um það hvað tiltekin hús í borginni innihalda. Haltu áfram á þessari braut og þú verður hirðleiðsögumaður minn héðan í frá. Æðislegt :)

8:58 e.h.  
Blogger Svava said...

Tja, ég myndi helst vilja sleppa að minnast á Borgarleikhúsið líka, því það er svo arfaljót bygging. Þannig að endilega dreifðu athygli útlendinga með skemmtilegum sögum ef þú nálgast húsið í skoðunarferð.

2:20 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home