mánudagur, janúar 30, 2006

Alls konar ormar

Andri hefur fengið óvenjulega mikinn frið fyrir SMS-skilaboðum frá móður sinni undanfarið. Þess vegna taldi ég að ástæða væri til að senda honum þetta:

Minn galni grasormur
því hoppar þú eins og gormur
um hæð og sund
með létta lund
alveg eins og Siggi stormur.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Drengurinn hlýtur að hafa orðið ofsaglaður! Var hann ekki kominn með fráhvarfseinkenni?

11:39 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home