mánudagur, júní 20, 2005

Dýrðardagar í íslenskri náttúru

Við Freyja erum báðar alsælar þessa dagana, enda hver dýrðin rekið aðra hjá okkur. Á laugardaginn gengum við upp að Glym ásamt Svövu systur, Höllu, Ólöfu vinkonum mínum, Kristjáni Óla syni Ólafar og Óla bróður hennar. Einnig voru með í för slatti af börnum meðal annars Sölvi sonur Óla, Katla litla dóttir hans og Unnsteinn sonur Hansa vinar hans. Hansi og Svava kona Óla fóru aðeins hluta leiðarinnar en mikið dáðist ég að Hansa. Hann bar son sinn tveggja ára í burðarpoka á bakinu og hljóp upp fjallið án þess að blása úr nös. Já, einhvern tíma ætla ég að verða svona. Það verður hins vegar ekki fyrr en ég verð amma því fyrr hef ég ekki tveggja ára gutta til að æfa mig á. Við gengum upp vestan megin Botnsárinnar og óðum yfir fyrir ofan fossinn. Leiðin austan megin er dásamleg en víða er gengið eftir einstigi utan í snarbröttum brekkum. Lofthræðslan fékk því fyrirtaksfóður víða og ég ýmist skreið með hálflokuð augu eða renndi mér á rassinum þar sem verst var. Það virkaði fínt. Gilið er hrikalegt og ægifagurt. Líkt og svo oft áður fylltist ég lotningu og gleði yfir dásamlegu sköpunarverkinu. Ef einhver guð er til þá er hann í þessu yndislega landslagi sem við getum glaðst yfir svo víða á landinu okkar. Á sunnudaginn fórum við svo austur á Þingvelli og héldum upp á 90 ára afmæli kosningaréttar kvenna. Freyja var óskaplega stillt og prúð í mannfjöldanum og ég dáðist að barninu mínu. Mamma, Magga, Svanhildur og fjölskylda og Svava voru þarna með mér og allar vorum við ánægðar með daginn.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home