mánudagur, desember 19, 2005

Hættulegar gjafir frá jólasveinum

Séra Flóki Kristinsson vill ekki ljúga að íslenskum börnum og segja þeim að jólasveinar séu til. Ég skil það vel, enda vitnar þessi vísa um hættuna sem stafar af jólasveinum.

Í skóinn frá Kertasníki
fékk Jónas Páls. kíki.
Hann bar hann að auga
og sagði: „Þarna er Lauga.“
Og varð umsvifalaust að fríki.

2 Comments:

Blogger Svava said...

Jólasveinar einn og átta
komu þegar ég var að hátta
að vonum varð hissa
en fór þá að kyssa
þá fóru þeir um mig að þrátta

2:59 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hætti mér ekki út á hálan ís. Þið systur eru snillingar í að yrkja og engu frekar hægt að bæta við þetta.

3:33 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home