Kuldalegir knattspyrnumenn
Þær hræðilegu fréttir blöstu við þegar flett var Fréttablaðinu í morgun að knattspyrnuþjálfari hefði fryst ungan íslenskan knattspyrnumann. Þetta skýrir auðvitað að nokkru leyti hvers vegna ungir menn fá svona vel borgað fyrir að sparka tuðru á erlendum grasvöllum. Það er ekki gott að geta átt von á því að vera stungið í frystikistu fyrir minnstu yfirsjónir eins og lélegt dagsform. Mikið var ég fegin þegar eg las þetta að sonur minn hefur aldrei sýnt nokkurn áhuga á knattspyrnu og því ekki líklegur til að verða hraðfrystur.
1 Comments:
Gott að frysta þá og hafa þá við hendina. Síðan þegar manni vantar góðan fótboltamann kippir maður honum út, setur aðeins inn í örbylgjuna á "defrost" og voilá, maður er kominn með notahæfan leikmann.
Skrifa ummæli
<< Home