fimmtudagur, september 15, 2005

Köttur í bóli bjarnar

Gummi er kominn heim og enginn á heimilinu hefur farið varhluta af því. Freyja fagnaði honum ákaflega þegar hann kom en í morgun varð henni ljóst að ýmislegt neikvætt fylgdi því að fá karlinn heim. Tíkin er nefnilega vön að stökkva upp í rúm til mín milli fimm og sex á morgnana og kúra sig Gummamegin í rúminu. Hún ætlaði að halda uppteknum hætti í morgun en varð að hætta við stökk í miðjum klíðum þegar hún sá að kominn var ansi stór köttur í ból bjarnar og ekkert pláss fyrir hana lengur. Hún settist því við rúmstokkinn hjá Guðmundi og bofsaði örlítið, ýlfraði og urraði yfir þeirri frekju að vera sofandi í hennar plássi. Við vöknuðum bæði við lætin og þegar Gummi ákvað að færa sig ögn til stökk tíkin upp og kom sér makindalega fyrir á koddanum hans. Þaðan neitaði hún að hreyfa sig og Gummi lagðist á endanum þversum yfir rúmið til að hrófla nú ekki um of við frekjudollunni en henni fannst samt of langt gengið og drattaðist fýluleg burtu. Já, hjónarúmið mitt er sannkallað dýrabæli.

1 Comments:

Blogger Svava said...

Ég hef einu sinni deilt þessu hjónarúmi með barninu mínu, einum hundi og tveimur köttum. Áfallið sem ég fékk þegar ég vaknaði um morguninn og hélt að dóttir mín lægi við hliðina á mér, aðeins til að sjá glaðlegt loðið andlit með lafandi tungu er ég sneri mér við... já það áfall jafna ég mig seint á. Best of british luck í baráttunni um rúmið Guðmundur, Freyja mun vinna

12:46 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home